Persónuvernd og skilmálar
Ábyrgðaraðili
Reynir bakari ehf., kt. 701195-3029, Dalvegi 4, 201 Kópavogi. Sími 564 4700, netfang [email protected].
Hvaða upplýsingum við söfnum
Þegar þú sendir pöntunarbeiðni í gegnum vefinn biðjum við um eftirfarandi:
- Nafn og símanúmer, svo við getum staðfest pöntunina.
- Netfang, valfrjálst, svo hægt sé að ná í þig ef ekki svarast í síma.
- Það sem þú pantaðir: vöru, valmöguleika, fjölda, afhendingardag og athugasemdir.
- Fyrir fyrirtækjapantanir: nafn fyrirtækis, kennitölu og tengilið, svo hægt sé að gefa út reikning.
- Afhendingarstað, ef óskað er eftir sendingu í stað þess að sækja.
- Mynd, ef þú velur að senda mynd með pöntun, til dæmis mynd sem á að fara á tertu eða mynd sem við eigum að vinna út frá. Myndin fylgir pöntunarbeiðninni sem viðhengi í tölvupósti. Vefurinn geymir hana ekki og hún er hvergi vistuð á netinu.
Af hverju og á hvaða grundvelli
Við notum upplýsingarnar eingöngu til að vinna úr pöntuninni þinni: staðfesta hana, baka rétta vöru á réttum degi, gefa út reikning þegar við á, og hafa samband ef eitthvað þarf að ræða.
Vinnslan byggir á samningi við þig (framkvæmd samnings, sbr. 2. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018), og að því er varðar reikninga á lagaskyldu um bókhald.
Við sendum þér ekki markpóst og seljum eða miðlum upplýsingunum ekki til þriðja aðila í markaðsskyni.
Hverjir sjá upplýsingarnar
Pöntunarbeiðnin berst í netfangið [email protected] og er aðgengileg starfsfólki sem vinnur við pantanir. Vefurinn sjálfur geymir engar pantanir.
Tveir vinnsluaðilar koma að því að koma beiðninni til okkar: Cloudflare, sem hýsir vefinn og tekur við beiðninni, og Resend, sem sendir hana sem tölvupóst. Cloudflare geymir ekki pöntunina, en Resend geymir afrit af sendum pósti í takmarkaðan tíma í afhendingarskrá sinni. Báðir vinna gögnin eingöngu fyrir okkar hönd samkvæmt vinnslusamningi. Resend er bandarískt fyrirtæki og flutningur gagna þangað byggir á viðurkenndum flutningsheimildum. Efni vefsins, svo sem vörur og myndir, er geymt hjá Sanity; þangað fara engar upplýsingar um þig.
Hversu lengi
Pöntunarbeiðnir eru geymdar á meðan verið er að afgreiða pöntunina og í hæfilegan tíma eftir það vegna fyrirspurna. B ókhaldsgögn, þar á meðal reikningar á kennitölu, eru geymd í sjö ár eins og bókhaldslög kveða á um.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim upplýsingum sem við geymum um þig, láta leiðrétta þær, láta eyða þeim þegar það á við, og andmæla vinnslu. Hafðu samband í [email protected].
- Teljir þú að vinnslan standist ekki lög getur þú beint kvörtun til Persónuverndar, persónuvernd.is.
Vefkökur
Vefurinn setur engar vefkökur. Tungumálið sem þú velur er hluti af vefslóðinni (/en fyrir ensku), svo ekkert þarf að geyma. Það eina sem vafrinn þinn geymir er merki um að opnunarmyndin hafi þegar spilast í þessari heimsókn; það hverfur þegar flipanum er lokað og fer hvergi.
Við teljum heimsóknir með Cloudflare Web Analytics. Sú talning notar engar vefkökur, geymir enga persónugreinanlega vitneskju um þig og fylgir þér ekki milli vefsvæða. Við sjáum aðeins samtölur: hversu margir komu, hvaða síður voru skoðaðar og í hvaða landi. Þess vegna biðjum við þig ekki um samþykki fyrir vefkökum.
Letrið á vefnum kemur af leturþjónustu Google, sem sér IP-tölu þína eins og hver annar vefþjónn sem vafrinn sækir skrá til; hún setur enga vefköku. Kortið neðst á forsíðunni hleðst hins vegar ekki fyrr en þú smellir á „Sýna kort“. Þá kemur það frá Google, sem getur sett sínar eigin vefkökur samkvæmt persónuverndarstefnu Google. Viljir þú það ekki geturðu smellt á heimilisfangið við kortið, sem opnar Google kort í nýjum glugga, eða einfaldlega notað heimilisfangið.
Skilmálar sérpantana
Pöntun og staðfesting
Beiðni sem send er í gegnum vefinn er ekki bindandi pöntun fyrr en við höfum staðfest hana. Við hringjum til að fara yfir útfærslu og endanlegt verð.
Verð sem birtist á vefnum er áætlað verð miðað við það sem valið var. Endanlegt verð er staðfest í símtalinu.
Fyrirvari og afhending
Lágmarksfyrirvari er tilgreindur við hverja vöru. Í kringum hátíðir getur fyrirvarinn verið lengri og þá látum við vita þegar við staðfestum.
Greiðsla
Ekkert er greitt á netinu. Greitt er þegar pöntunin er sótt á Dalvegi 4, eða samkvæmt reikningi þegar um fyrirtækjapöntun er að ræða.
Breytingar og afpantanir
Hafðu samband í síma 564 4700 eins fljótt og hægt er. Vörur sem þegar eru komnar í framleiðslu getur þurft að greiða fyrir.
Ofnæmi
Allt er bakað í sama húsi og því getum við ekki ábyrgst að vara sé alveg laus við ofnæmisvalda á borð við hnetur, glúten, egg eða mjólk. Láttu vita í pöntuninni og við segjum þér hvað er mögulegt.
Spurningar um persónuvernd eða pöntun? Hringdu í 564 4700 eða sendu okkur línu á [email protected].
